Bloggsvæði Sunnu&Kristveigar&Arneyjar
30.05.2007 20:21:54 / Arney

Vááá gleimd síða

Váá langt síðan það var bloggað örugglega ár síðan ... en 7 búnir að koma í dag þýðir að einhver skoðar hana ... ætla að blogga bara hér til gamans og allir að commenta sem lesa skylda .. til að sjá hvað margir haha :')

En já hvað er að frétta af okkur ??

Sunna .. :)

Sunna er búin með eina önn í MK á félagsfræðibraut og ætlar að halda áfram og gengur glimrandi vel .. hún er að vinna í Sambíóum Álfabakka og búin að vera þar í smá tíma og í sumar verður hún líka í unglingavinnunni í Kópavogi ásamt öllum vinkonum okkar.. Hún er ekki komin með mann held hún sé ekkert að pæla í því .. fynst lífið frábært eins og það er :)

Kristveig :)

Með svarta hárið

Hún er líka búin með eina önn í MK á félagsfræðibraut líka og gengur príðis vel og ætlar að halda áfram í MK .. Hún vinnur í Smárabíó og búin að vera þar í líka smá tíma og í sumar verður hún líka í unglingavinnunni með stelpunum :) Veit ekki hvernig málin standa hjá henni og Brandi allavega búin að vera eitthvað að tala saman í hvað ár ! :O okei ég segi að það sé komin tími á samband .. Hún er líka á fullu í dansinum og ég spái því að hún verði dansari sko !

Arney (ég)..:)

 Ég er líka búin með eina önn í MK eins og allar stelpurnar... á málabraut og gekk bara vel :) ég ætla ekki að halda áfram þar sem ég er flutt til DK og verð þar þangað til maí 2008 er au-pair og það er alveg ágætt :) stráka mál = 0 hjá mér ekkert að pæla í þessu nenni ekki að eyða tíma í svoleiðis ruggl

 Segi þetta gott

ArneyÁ :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 00:32:59 / moses

Þetta voru ekki endalok

Nei nei við erum ekkert hættar endilega, bara svona ekki að gera mikið bloggum bara þegar við nennum og höfum ekkert annað að gera.

Um helgina fórum við í matarboð sem var hjá Arney og þar voru Sunna,Arney,Kristveig,Þula,Eva,Heiðrún,Ástrós,Sigrún og Anna Guðný. Það var bara gaman elduðum kjúlla og svona ís með marssósu í eftirrétt og svo varð þetta soldið skrautlegt svona:D

En takk fyrir kvöldið stelpur

Vantar bara Arney myndatökumann :)

Bleee


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 22:35:06 / moses

This is the winter of our discontampt...

Hæ langt síðan maður hefur bloggað á þessari síðu. Ég ætlaði bara að blogga vildi ekki vera sú sem ætti sökina á því að drepa síðuna okkar.

Í dag þá vaknaði ég bara í morgun hjólaði yfir til Kristveigar til að fá far í skólann á einhverju þríhjóli (lítið hjól) Við vorum orðnar seinar og þurftum að vera mættar í íslensku tíma til að halda fyrirlestur um sæðisfrumur og fóstureyðingar.

 Jæja komum í tímann rétt sluppum og svo var komið að okkur að halda fyrirlestur búnar að gera heljarinnar slideshow og rosa flott svo var Kristveig að lesa upp af einni glærunni, fer í smá svona hóstakast síðan ætlar hún að halda áfram þá er hún enþá með svona hóst í hálsinum þið skiljið, röddin soldið rám svona hehe og hún talaði eins og einvher karl, henni fannst það svo fyndið eins og allt þegar hún er með mér að hún fer bara í hláturskrampa,og ég bara whaa hvað er í gangi þannig ég þarf að stíga fram og halda áfram að lesa sá að allir í stofunni voru orðnir soldið vandræðalegir og flóttalegir því þegar ég er að lesa þá stendur "blóðflokkur" en ég las það sem "þjóðflokkur" og það kemur náttúrulega út í einhverju fáránlegu samhengi. Kristveig heldur áfram að hlægja.

Síðan segir kennarinn við okkur að þetta hafi ekki verið nógu líflegt, ég sá nú ekki betur en að það hafi allir tekið soldið undir með henni Kristveigu :)

Þarnæst kemur að eyðu og ég, Kristveig og Ástrós förum allar heim til mín, hjólum  niðrí 10-11 til að fá okkur að borða á hjólum litlu systikina minna og þar að auki var Kristveig á keðjulausu hjóli það var frábært, svo komum við heim og þá þurftum við að horfa á "besta" þátt í heimi South Park, að mati Elvars. En fullyrðing hans reyndist röng, en alltaf gott að leggja fram tilgátu samt;)

Herðu já svo er Þula komin heim, langt síðan ég sá hana og velkomin heim :D

Ég held ég ætli að tileinka þetta blogg henni Kristveig, hún kom svo oft fyrir í því, verð líka að tileinka Finna aka "Rækjutyppi":lol: því hann er búinn að vera svo duglegur að skirfa sínar skoðannir.

 
Kristveig í öllu sínu veldi              Hver fer í Mótor að pósa í búðarglugga annar en Finni??


Bleee %&$Sssunna

Verð að bæta þessu inní

How Will I Die Quiz

You will die at the age of 21

You will die when your underwear gets to tight and cuts off your blood circulation

Find out how you will die at Quizopolis.com


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 20:31:27 / moses

Sunna og Arney

Jæja Ég sit við hliðiná Arney og hún er að taka gröft úr nafnlanum sínum, charming.

Ég fór í skólann í dag og það var mjög gaman. Fyrir utan það að ég hef aldrei á mínu 16 ára æviskeiði kynnst jafn miklu drama en svo fórum við bara aðeins að hitta stelpurnar og svo fór ég og Arney heim til mín ætluðum að fá okkur að éta en svo var pizza hjá Arney þannig við færðum okkur yfir til hennar og átum pizzu.

Hey já á sunnudaginn þá fórum ég ,Kristveig , Ástrós og Eva í smáralind að sjá Magna en það var svo fáránlega mikið að fólki þannig við nenntum ekki að sjá hann fórum bara á Pizza hut og fengum okkur að éta og hlustuðum á hann.

Já svo var ég í íslensku í dag og þar var eithvað ljóð sem við áttum að segja hverju væri verið að lýsa, og Kristveig var nýbúin að segja mér að það væri verið að lýsa margfætlu en ég vissi ekki hvort hún var að djóka eða ekki og svo spyr kennarinn:Jæja hverju er verið að lýsa og ég segi hátt og snjallt, Margfætlu og kennarinn bara uu neei ekki alveg rétt hjá þér, það er verið að lýsa kisu. Og ég sit þarna eins og einvher kúkur og Kristveig að drepast henni fannst þetta svo fyndið Og All Eyes on Me.

En við erum farnar out Sunnaaaaa og Arneyyy



Sunna SÆTA

 

Arney Gelgja!!! vá hvað ég man eftir þessu hehe




» 6 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 11:15:07 / Arney

BusaBallið í Versló!!

Busaballið í Verzló var í gær :D ...´já hvað getur maður sagt um það hehe :P

  • FyrirPartýið hjá 3-G var sniild :D
  • Mikil ölvun :P
  • Ballið Var fínt :D
  • Hljómsveitin alveg góð...allavega gat ég skemmt mér :P
  • Leið yfir mann á dansgólfinu
  • Allir að Stíga á mig:^)
  • Einhver Gaur sem bar mig upp..algjör dúlla :D
  • Allir að týna öllum.
  • Edda María í dauðaherberginu 8)
  • Veski og föt týndust :/
  • En komu aftur í leitirnar ;)
  • Ekkert mikið um að fólk deildi kossum :/
  • Reyndar Pétur og Ásdís heiiit !!
  • Sumir Kærastar alveg ömurlegir!:^)
  • Hussla ...maður spyr sig :$

Jáá veit ekki hvað ég get sagt ykkur meira frá þessu :/

En það fara að koma myndir bráðum frá þessu ;)

Og stelpur fariði að drífa í spánarmyndunum :D

Svo átti Sandra afmæli í gær vildi bara óska henni til hamingju með það ;) ;**

s


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 18:22:51 / Arney

Blogg :D

HæÆ Tími til að ég bloggi :)

En já helgin er bara búin að vera fín hjá mér :D

Á föstudeginum fór ég bara í bíó með Sunnu og Kristveigu á Step Up fokk langaði að fara að dansa eftir hana!8| hittum Evu eftir vinnu og ætluðum svo til Eddu sem var með afmæli, hittum Ástrósu þar en þegar við komum var allt búið þannig við hringdum í Samma og ætluðum í hans partý en nei nei of margir og eitthvað mimimi þannig við bara okay fórum á Domino's og stelpunar fengu sér að éta og eitthvað heim sofa :P

sætustu ;)

Svo á Laugardaginn vöknuðum við kl hálf 11 til að fara að safa pening fyrir börn í Afríku með alnæmi erum svo góðar :D (a) :P jáá og stelpunar fóru heim eftir þar og ég fór að tala til hjá mér...Svo kom Sunna aftur til mín í matarboð..mmm já það var fínt Sunna og Ástrós ekki halda að ég sé of skil fjölskildunni minni :P

Ástrós mín :*

Svo kom Ástrós og við fórum til Sunnu...Svo komu Elvar og einhver Alli að sækja okkur og sóttum Heiðrúnu og við fórum með þeim í partý í Hlíðunum.. haha bara snild þar Finni eitthvað að klifra uppá það og Hrafnkell (Hralli) offff Fullur hehe :PFórum svo niðrí bæ og kíktum smá á Sportbarinn ...Svo bara ætluðum við að taka taxa og hehe strákarnig eitthvað að láta í púkk fyrir taxa fyrir okkur krúttin ;) en þá keyrði Maggi (bró) og Helgi frammhjá og skutluðu okkur heim :D

Laugardagur 9 sept

hehe ég með BlÁu augun mín :) Sunna já og Heiðrún sæta ;)

Laugardagur 9 sept

hehe Ívar - Elvar - haha Finni snillingur !-Siggi ;)

Laugardagur 9 sept

Hrafnkell á efa ofurölvi kvöldsins :P

Svo í Dag vöknuðum við Sunnu bara vel freskar og eitthvað ég fór heim að læra og svo er það bara ræktin á eftir :P

Svo er ég og Eva elskan mín að fara á Busaballi í Verzló sem verður bara gaman :D og já ég búin að lofa Sunnu minni að fá mér einhver sætari en á Mk ballinu hehe lofa þér því ;*

sætasta ;* verður bara offf gaman hjá okkur :D

Segjum þetta gott

-arneyÁ


» 12 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 20:44:43 / moses

Sunna blogging

já Fór í skólan í dag og kom seint eftir 2 daga veikinda frí en ég fékk samt ekki seint:)Svo féll íslenskan niður hjá mér og Kristveigu, mikil gleði. Þannig við fórum heim til hennar, og vorum svo svangar að við brunuðum útí bakarí á hlaupahjólunum okkar og keyptum bakarísmat! Ætluðum svo í sing star en neeeeei það var týnt.

Svo alltí einu voru bara 5 mín þangað til við áttum að mæta þannig við drifum okkur uppi skóla og þetta er bara labba upp brekkur og við vorum svo þreyttar, það var fólk farið að taka fram úr okkur, í alvöru það labbaði gaur framúr okkur.

DÖNSKUTÍMI

Ég verð að segja frá dönskunni, það var þannig að ég og Ástrós sátum saman aftast og vorum bara eithvað í tölvunum okkar og svo sagði kennarinn öllum að loka tölvunum því hún var að fara að lesa einhverja sögu og við áttum víst að fylgjast með þannig við gerðum að bara. og svo svona í lokin þá sáum við að allir fyrir framan okkur voru búnir að opna tölvurnar sínar þannig við gerðum bara hið sama. Framhaldið var svona:

Kennari: Stelpur þið 2 þarna aftast

 Við: Já!

Kennari: Hver sagði að þið mættuð opna tölvurnar

Við: Umm það sagði það enginn en allir fyrir framan voru búnir þannig við gerðum það bara líka.(þá loka allir tölvunum mjög snöggt)

Kennari: Nei ég sé engan með opnar tölvur, lokiði tölvunum núna.

(Tvem sekúndum seinna)

Kennari: Jæja krakkar opniði tölvurnar

Og allir fóru í krampa. Soldið misheppnað líka:D

En svo eftir skóla þá fórum við Kristveig í sporthúsið og svo var ég að koma heim núna og er að borða snúð: )

Þula, Heiðrún, Ástrós og Arney:D


Ein gömul og góð af mér og Kristveigu, á leiðinni til Danmerkur shit hvað mig langar aftur


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 16:42:58 / moses

Supernova og meira

Ég var að horfa á Supernova í gær með Arney eins og kannski flestir á þessi landi nema ekki með Arney, og fannst Magni standa sig mjög vel eins og alltaf.En svo horfði ég á úrslitin heima bara og var bara eithvað glætan að hann verið með 3 neðstu isss en svo bara Magni you are also in the bottom 3 ég héllt ég yrði  ekki eldri.

Ég fór líka að grenja úr gleði þegar Gilby Clarke sagði Magni you are so far from going home!Kannski lifi ég mig of mikið inn í þetta ég veit það ekki en það var enþá flottara hjá honum þegar hann söng creep í gær.

En frá þessu yfir í annað.

Á morgun  er föstudagur og þá verður kveðju teiti hjá Arney held ég fyrir hana Þóru sem er að fara á Laugarvatn ekki satt? Og svo er Menningarnótt á Laugardaginn. En stelpur hvernig verður planið á þessu matarboði ? verður það hjá Arney eða ætlum við eithvað út að borða bara ég er game í bæði mér er sama hvað við gerum skrifið bara í skoðannir ykkar skoðun á því.


Þið eruð ágætar:)

Sunna


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 23:00:28 / Arney

Ak um versló ?!?! :D

Jæja tími á blogg?!?! ....jább ég held það nú :D

Allavega það er búið að vera allt á fullu hjá mér þessa dagana...ég að vinna eins og mother fucker í unglingavinnunni og líka Hagkaup:$ en ég er að fara að hætta þar aftur hehe :P því ég fékk vinnuna í Zöru :D:D jeijj byrja núna á mánudaginn :D :haha: hlakka til held að það sé bara mjög fínt :D



Já ég og Sunna skelltum okkur til Hríseyjar á Hríseyjar hátíðina það var mjög fínt komum á föstudeginum kl 12 og byrjuðum þá að tjalda og sonna ;) fórum við til Huldísar að hitta stelpunar og það var nú mjög skrautlegt þar ;) en förum ekkert nánar útí það :) svo á Laugardaginn var ball með æji honum Hjálmtírsyni man ekki hvað hann heitir en já það var geggjað og jább mjög gaman :) og fullt fleira sem gerðist nenni ekki að segja frá því hehe ;) :P


mmm fersku á brenunni :P



elsk'ykkur ;*
*

Svo er hún Kristveig okkar komin heim frá spáni:D pff í annað sinn sem hún fer til spánar í sumar heppna! :^) :) en hún stoppar ekki lengi á klakanum því hún er að fara strax aftur núna á sunnudaginn með JsB til London í dansskóla í viku...




átt eftir að standa þig vel úti ;)

Svo er maður ekki búin að sjá hana Ástrósu sína lengi :( sakna þín rosalega :cry: Hún bara búin að vera á Portúgal svo sá ég hana ekkert þegar hún kom heim og svo er hún strax rokin til Danmerkur með fótboltanum í hitan þar en já hlakka til að fá þig heim sæta mín ;**



Elska þig ;**

Það stefnir allt í það að ég fari norður með henni Sunnu minni um Verslunarmannahelgina :D:D já ég fer víst ekki til Boston að versla eins og mamma og pabbi voru búin að plana þannig ég fer bara með henni :D það verður sko gaman ! ójá :D :haha: :!:


Sunna mín ;* og ég :D


En já núna eru bara Ítalskir gestir hjá okkur :) og mín orðin sleip í Ítölskunni eftir að ég fór þangað í sumar og að hlustá þau tala get sona smá hhehe :P


mmm ferska á ströndinni :P


hah ennþá betri hérna :P


Held bara að þetta sé bara komið gott :) held ég fari bara að tala við gestina mína ;)

Arney Out ;) ;* 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 22:00:22 / moses

Jæææja

Þá erum við Arney að fara á hina árlegu Hríseyjarhátíð á morgun og ég veit ekki alveg hvenar við komum heim en einnig í för með okkur slást Þula og Heiðrún eða þær reyndar fóru í dag þannig þær slást ekki í för með okkur en við hittum þær bara þarna. Þetta verður geðveikt gaman:D
Og svo kemur Kristveig víst heim á laugardaginn við verðum þá bara að hitta hana þegar við komum frá Hrísey nema við verðum svo lengi að hún verði bara farin aftur út.
Í gær var víst einhver Vinnuskóla rokkhátíð á torginu þarna yfir Kringlumýrabraut fyrir aftan Landsbankann. Dagurinn reyndar byrjaði þannig að við fórum allur hópurinn  klukkan 1 á American Style og við vorum á launum, það var alveg frábært og svo brunuðum við beint í bíó tróðum okkur 7 í ekki svo mjög stóran bíl, fórum að sjá The long Weekend minnir mig að hún heiti og frítt aftur á launum;) enþá er það frábært.
Svo fóru bara flestir heim en svo var þessu rokkhátíð og ég mætti með Þóru og Arney um 8 leytið.
Svo er það þannig að við erum með svona stiga keppni í unglingavinnunni og hann sem endar uppi með flest stig fær einhvern pakka eða eithvað og Þóra t.d. labbaði upp á svið og öskraði í mígrafóninn PÚKARPETRU og fékk 10 stig og svo er ég búin að fá stig fyrir að borða gras, anisplöntu og laufblöð og ég er með 120 stig Arney með 117 og Þóra er með 160 af því að hún er búin að borða orm og lirfu en ég ætla að vinna hana.:D
Herðu já það er bara hríseyjarhátíðin vinnuhelgi og svo verslunarmannahelgin:)



» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 18:43:08 / Arney

Tími á blogg ?!?!

Jæja tími á blogg eða hvað ??....held það sko :D ;)

Ég ætla að byrja á því að óska henni SunnuÁ bekkjarsystur okkar til hamignju með afmælið :D hún er víst 16 ára í dag og bara já til hamingju með það :D

Allavega ég og stelpunar búnar að vera mjög busy í sumar þessvegna hefur þessi síða ekkert verið að gera sig sko,, allar í unglinavinnunni og svo erum við allar að vinna í Hagkaup líka en ég reyndar mest... en já ég fékk vinnu í Hagkaup semsagt aftur nema núna í undirfötunum ekki á kassa sem betur fer ekki :D ...
En svo í dag fékk ég símtal frá Zöru og það var verði að bjóða mér í atvinnuviðtal og ég nottla þáði það :D þannig ég er kannski að hætta í Hagkaup og byrja í Zöru sveimér þá hhehe ég er alltaf að hætta þar ehhe :P ...
Já svo eftir viku er ég að byrja að læra á bíl :D:D víí hlakka til og strákar ef þið ætlið að vera með einhvern móral herna um að ég geti ekki keyrt þá bara ekki reyna það sko! ekkert þannig herna takk :D ;)

en já ég veit ekki hvort ég nenni að skrifa neitt meira ... það er bara búið að vera brjálað að gera hjá mér í vinnunum núna undanfarnadaga þannig ég hef ekkert verið að gera af mér og ekkert að segja frá :S

Arney Out ;) :* ,,


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 21:31:16 / moses

Komnar heim!

Við komum heim klukkan svona 3-4 um nótt á þriðjudaginn síðastliðinn.
Þetta var ein af skemmtilegustu utanlandsferðum með Króatíu reyndar líka.

En við komum okkur fyrir fyrsta daginn komum um 12 á hádegi og við gistum í stóra hjónarúminu og fengum svefnherbergið þar af leiðandi :) síðan fórum við bara að skoða okkur um og svona.Við fórum einn daginn í kafbát sem var frábært vorum reyndar soldið hræddar um að sjá hákarl fyrst en svo kom enginn hákarl er reyndar svoldið svekkt núna en við sjáum hann bara næst ;) Svo fórum við í vatnsrennibrautagarð og það var nú meiri dellan lentum í einhverri myndatöku þar upp við einhvern foss, það var þannig að þarna voru fullt af mönnum með myndavélar að taka myndir af fólki sem vildu og svo gat maður keypt þær ef maður vildi og einn karlinn blaðraði einhverja enskspænsku og Kristveig bara kinnkaði kolli og þá fór hann með okkur á einhvern foss þarna og byrjaði bara að taka einhverjar myndir og svo vildum við þetta rugl ekkert haha þannig hann fór  bara að gera grín af okkur að við værum eitthvað feimnar af því við vildum ekki vera að pósa þarna eins og einhverjir fávitar og allir í kringum að horfa á okkur. En ég var í krampa þegar hann var að láta Kristveigu að pósa eina upp við einhvern klett og svo drapst hún líka úr hlátri þegar hann lét mig gera það sama. Þetta var eiginlega niðurlæging.

Svo vorum við komnar á heimavöll. 5 hæða Shopping Center, og versluðum slatta þar, eyddi reyndar öllum peningnum mínum þar og held að Kristveig hafi líka gert það hehe.Svo rölltuðum ég og Kristveig nokkrum sinnum niður í bæ og fórum á Rock café það var allveg frábær staður fengum besta kokteil í heimi þar San Fransisco hét hann og svo vorum yfirleitt einhverjar hljómsveitir að spila eða já yfirleitt.
Herðu já svo spiluðum við Tennis þarna hittum nefnilega tvo efnilega tennisleikara þarna Nonni og Konni, bara tilviljun að þeir hétu þessum skemmtilegum nöfnum, ég heeeeeld ekki. Þeir þekktust ekki neitt allavega.
Svo gerðum við helling meira lágum yfirleitt á daginn í sólbaði í geeeðveikum sundlaugargarði og fórum á ströndina og það var geðveik brimströnd en við þorðum ekki útí sjóinn eftir að við sáum glæran fisk í honum.

Eeeen þetta er svona megnið af ferðinni  þó það hafi verið fleiri ýmsar skemmtilegar uppákomur:D Það koma kannski myndir inn bráðlega.

En þangað til næst.
Kv. Sunna og Kristveig

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 19:39:59 / moses

Sunna bloggar

Lag bloggsins: The Golden Age-Jeff Who?

Sæll veri lýðurinn.
Eins og kannski flestir vita þá erum við Kristveig að fara út og Arney er líka að fara en hins vegar ekki á sama stað og við.Það hefði nú annars verið skemmtilegt en ég hef farið áður með þeim báðum og svo líka með Arneyu einu sinni enn.En við erum að fara til eyju sem heitir Fuerteventura og er í þessum Kanaríeyjar klassa en ég hef komið 4 sinnum til Kanarí og alltaf á sama hótelið nema einu sinni, já það er mikil fjölbreytni í þessu fólki.

En yfir í annað þá er ég byrjuð í prófunum aftur!!!
Var í fyrsta í dag, enska og það vara bara kúkur í bala.
Svo er íslenska svo stærðfræði svo danska svo Arney út svo við út.

Í dag þá fór ég með Kristveigu til tannlæknis og hún fékk verðlaun! og svo fórum við í smáralind hehe og vorum bara eithvað að skoða þarna í Zöru og þá labbar kona upp að okkur sem heldur á bol og spyr okkur hvort hann sé ekki til í fleiri stærðum! Og við urðum svo hissa eitthvað að við eða ég stamaði út úr mér að við værum bara alls ekki að vinna þarna Kristveig gat ekki sagt neitt af því henni fannst þetta svo brjálæðislega fyndið.
Góð saga!

En við segjum þetta gott í bili við komum með eitthvað gott og flott kveðju blogg áður en við förum út!:D

 


Glitter Graphics



Bramm bamm tiSSSSunna


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 22:32:10 / moses

Kristveig hér..

Lag bloggsins: Iris - Goo goo dolls

 

Biðst velvirðingar á bloggleysi frá mér...

 

Ég var að koma úr útskriftarveislu og það var alveg ágætt fyrir utan það að ég bauðst til að vera svona þjónustustúlka og þurfti að segja:”Má ég bjóða þér hvítvín, bjór eða gos,,

Þrjúhundruðsjötíuogfimmsinnum....Og ég held að eldri karlmenn séu hræddir við mig:/ Veit ekki hvað það er en alltaf þegar  að ég labbaði fram hjá eldri mönnum eða ætlaði að bjóða þeim meira í glasið sitt þá urðu þeir eitthvað voðalega skrýtnir á svipinn. Fannst eins og þeir héldu að ég væri bara einhver geimvera..:S

Nature

En nemendasýningin var á þriðjudaginn síðastliðinn haldin í Borgarleikhúsinu og það var ógeðslega gaman!!  Ég var semsagt dansmey úr Chicago og við vorum úr Honey rag atriðinu,svo vorum við í stuttum kjólum með eldrauðan varalit og með fullt af glimmeri allstaðar8)

 

 

 

 

 

En núna fer að styttast í útlönd með Sunnu,bara 12 dagar þangað til:)

 

Mynd af sundlaugargarðinum okkar.

Girnilegt ekki satt!!?

 

 

 

 

 

 

 

En í dag var síðasti skóladagurinn og ég verð að viðurkenna að mér fannst það pínu sorglegt því að ég er búinn að vera þarna í 10 ár og það er svolítið skrýtið núna að þurfa að vakna á morgnana og þurfa að mæta eitthvað annað.:S

 DanceDance

En svo eru prófin í næstu viku og svo eru við eiginlega bara komin í sumarfrí,hlakka ekkert smá mikið til! Held að þetta verði geeeðveikt sumar!:haha:

 Alright...

Religiousristveig

 

 

 

- Móses fyrir árshátíðina;) 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 01:19:15 / moses

For my mother who is bored!

Jæja Arneyar blogg er búið að standa meira en nógu lengi. Svo ég bloggaði bara!



» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2